Næstkomandi sunnudag 12. september leika strákarnir okkar við lið Breiðabliks í Kópavogi kl. 17:30. (breyttur tími)
Fylkir og Breiðablik eiga ólíku gengi að fagna í deildinni í ár, en Breiðablik er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn meðan Fylkir er að berjast í neðri hluta deildarinnar. Þetta verður án efa hörku leikur og vonandi hin mesta skemmtun.
Við hvetjum alla stuðningsmenn Fylkis nær og fjær að mæta í Kópavoginn og hvetja liðið til sigurs. Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis og stjórn stuðningsmannafélagsins Kidda Tomm hafa nú tekið höndum saman og ætla að gera allt sem í okkar valdi stendur til að efla stuðninginn við liðið. Við erum jú tólfti maðurinn eins og svo oft hefur komið fram. Upphitun fer fram við Fylkishöll frá kl. 15:30 á sunnudaginn og fríar rútferðir í Kópavoginn.
Nánar...