• *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.
Þú er hér: Heima Félagið Íþróttaskóli og sumarnámskeið Íþróttaskóli Selásskóla

Íþróttaskóli Selásskóla

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Nú í vetur 2010 - 2011 verður starfræktur íþróttaskóli Fylkis fyrir börn í fyrsta bekk og öðrum bekk í Selásskóla.

Skólinn er styrktur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og er því ókeypis.

 

Skólinn helst í hendur við skóladagtal skólans hvað varðar frí. Kennt er í íþróttasal skólans og skulu þátttakendur taka með sér íþróttaföt (bol, stuttbuxur eða síðar íþróttabuxur og innanhússkó). Ekki verður farið í sturtu eftir tímana.

 

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem mismunandi íþróttagreinar eru kynntar fyrir nemendum þannig að þeir eigi auðveldara með að velja íþrótt til að stunda í framtíðinni. Lögð er sérstök áhersla á þær greinar sem eru starfandi innan Fylkis.

 

Fylgt er stefnu ÍSÍ í barna og unglingaþjálfun þar sem minni áhersla er lögð á harða keppni en meiri áhersla á leik og samvinnu.

Kennari er Stefanía Eiríksdóttir sem er íþróttakennari í Selásskóla.

 

Umsjónarmaður íþróttaskólans er Hörður Guðjónsson Íþróttafulltrúi Fylkis s.567-6467.

 

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07. september 2010 13:22 )