Miðvikudaginn 9. maí sl. var uppskeruhátíð yngri flokka handboltans haldin í Fylkishöll. Þjálfarar fóru yfir árangur vetrarins og iðkendum voru veittar voru viðurkenningar fyrir góða frammistöðu, framfarir og ástundun. Yngstu iðkendurnir fengu svo allir viðurkenningarskjöl fyrir góða ástundun og framfarir í vetur.
Almennt var árangur góður hjá flokkunum í vetur og eignaðist félagið m.a. Íslandsmeistara í 6. flokki kvenna.
Myndir af hátíðinni má sjá hér að neðan:
Strákarnir í 8. flokki kátir með viðurkenningarskjölin ásamt Hemma þjálfara.
Stelpurnar í 7. og 8. flokki með viðurkenningarskjölin sín ásamt Hildi og Sunnu þjálfurum.
Strákarnir í 7. flokki með viðurkenningarskjölin sín.
Verðlaunahafar í 6. karla með þjálfurunum Bjarka og Viktori.
Stelpurnar í 6. kvenna yngra ár með Öllu og Hildi þjálfurum.
6. flokkur kvenna eldra ár og Alla og Hildur.
Verðlaunahafar í 5. karla yngra ár með Viktori þjálfara.
Viktor þjálfari með verðlaunahöfum í 5. karla eldra ár.
Pétur og Kolla þjálfarar með verðlaunahöfum í 5. kvenna yngra ár.
Pétur og Kolla þjálfarar með verðlaunahöfum í 5. kvenna eldra ár.
Verðlaunahafar í 4. flokki karla ásamt Steinari þjálfara.
Verðlaunahafar í 4. flokki kvenna ásamt Halla þjálfara.
Verðlaunahafar í unglingaflokki kvenna ásamt Halla þjálfara.
Stelpurnar í 4. flokki kvenna B með verðlaun fyrir deildarmeistaratitil í vor.
Bjarki Már þjálfari með viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil með liði sínu í vor.





