stuka

bordi

Sumarbordi

  • *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Á döfinni

Þú er hér: Heima Íþróttaskóli Fylkis 2012, 5-14 ára


Íþróttaskóli Fylkis 2012, 5-14 ára

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Íþróttafélagið Fylkir mun standa fyrir Íþróttaskóla Fylkis sumarið 2012 eins og undanfarin sumur.  Íþróttaskólinn er fyrir börn á aldrinum 5 – 14 ára ( fædd 1998 til 2007 ). Skipt verður í hópa eftir aldri og kyni sé það mögulegt. Skólinn samanstendur af fjórum tveggja vikna námskeiðum og fer starfsemin fram alla virka daga.

Námskeiðin verða sem hér segir:

Námskeið 1 ( 11. júní – 22. Júní )

Námskeið 2 ( 25. Júní – 6. Júlí )

Námskeið 3 ( 9. Júlí – 20. Júlí )

Námskeið 4 ( 7. Ágúst – 17. Ágúst ) 

Námskeiðin byrja kl. 09:00 á daginn og standa til kl. 15:00, boðið er upp á gæslu fyrir námskeið frá kl. 08:00 og svo eftir námskeið til kl.16:00. Boðið er upp á að taka eina viku og einnig er hægt að vera hálfan dag, kl. 09.00–12.00 eða kl. 12.00–15.00.

Starfsemi íþróttaskólans fer fram á glæsilegu svæði Íþróttafélagsins Fylkis við Fylkisveg. Aðstaðan samanstendur af glæsilegu og fullbúnu íþróttahúsi ( Fylkishöll ), gervigrasvelli og grasvöllum. Einnig er stutt í eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar sem Elliðarárdalur er. Aðstaða fyrir nestis- og matartíma er í Fylkishöll ásamt annari aðstöðu fyrir þátttakendur á námskeiðinu. Einnig verður farið í heimsókn í Fylkissel en þar er aðstaða fimleika- og karatedeildar Fylkis. Þeim sem eru á æfingum á námskeiðstíma er fylgt á æfingar og sótt aftur eftir að æfingu lýkur. Á námskeiðunum er lögð mikil áhersla á að þátttakendur kynnist þeim íþróttagreinum sem eru stundaðar hjá Fylki. Greinarnar sem um ræðir eru karate, fimleikar, blak, handbolti og fótbolti.

Ásamt þessum íþróttagreinum er einnig farið í aðrar íþróttagreinar, leiki af ýmsum toga og gönguferðir í næsta nágrenni. Markmiðið er að auka áhuga þeirra sem eru á námskeiðinu á íþróttaiðkun. Einnig er lögð áhersla á fjölbreytta hreyfingu og að allir fái útrás fyrir sína hreyfiþörf.

Lögð er mikil áhersla á að starfsfólk skólans ræði við þátttakendur um að bera virðingu fyrir hvort öðru og að taka tillit til þarfa hvers annars. Tekið er hart á öllum eineltismálum og er unnið eftir stefnu félagsins komu upp slík mál.

Þátttakendur á námskeiðunum mæta með sitt eigið nesti í nestis- og matartímum. Brýnt er fyrir foreldrum að senda börnin með hollt og gott nesti.

Skráning í Íþróttaskólann hefst 14. maí 2012 og eru veittir afslættir af þátttökugjaldi sé um systkini að ræða eða ef farið er á fleiri en eitt námskeið.

Verð

Hver heill dagur kostar 1.500 kr.  Tíu daga námskeið kostar því 15.000 kr.
Veittur er systkinaafsláttur.
Afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið.

Afslættir                                                       Afsláttur                    Verð

Systkinaafláttur                                             -3.000 kr                     12.000 kr

Þriðja systkinið                                              -5.000 kr                     10.000 kr

Fjórða systkinið                                             -7.000 kr                     8.000 kr

Annað námskeið                                            -1000 kr                      14.000 kr

Þriðja námskeið                                             -2000 kr                      13.000 kr

Fjórða námskeið                                            -3000 kr                      12.000 kr

Ef öll námskeiðin eru greidd í einu:              -10.000 kr                   50.000 kr

-Allir afslættir miðast við fullt námskeið ( 15.000 ).

Skráning

Skráning hefst 14. maí á heimasíðu félagsins og í Fylkishöll 571-5601.

 

Hægt er að greiða með því að millifæra gjaldið á reikning 535-26-636 Kt. 481173-0359.  Senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hafa nafn þátttakanda í skýringu.  einnig er hægt að greiða í afgreiðslu Fylkishallar og með því að hafa samband í síma 571-5601.

Námskeið 1 ( 11. júní – 22. Júní )

Námskeið 2 ( 25. Júní – 6. Júlí )

Námskeið 3 ( 9. Júlí – 20. Júlí )

Námskeið 4 ( 7. Ágúst – 17. Ágúst )

Síðast uppfært ( Mánudagur, 14. maí 2012 11:26 )