stuka

bordi

Sumarbordi

  • *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Á döfinni

Þú er hér: Heima Fimleikaskóli Fylkis 2012, 5 til 12 ára


Fimleikaskóli Fylkis 2012, 5 - 12 ára

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Fimleikadeild Fylkis mun í sumar bjóða upp á fimleikanámskeið fyrir 5 (2007) til                 12 ára (2000). Námskeiðin fara fram í nýrri og glæsilegri aðstöðu fimleikadeildar Fylkis í Fylkisseli Norðlingaholti.  Um er að vikunámskeið þar sem hægt er að vera annað hvort hálfan daginn frá 9.00 - 12.30 eða allan daginn frá 9.00 – 16.00.

Námskeið 1 ( 11. júní – 15. Júní )

Námskeið 2 ( 18. Júní – 22. Júní )

Námskeið 3 ( 25. Júní – 29. Júní )

Námskeið 4 ( 2. Júlí – 6. Júlí )

Námskeið 5 ( 9. Júlí – 13. Júlí )

Námskeið 6 ( 7. Ágúst – 10. Ágúst )

Námskeið 7 ( 13. Ágúst – 17. Ágúst )

Á námskeiðunum er farið í grunnatriði fimleikaþjálfunar og lagt mikið upp úr því að allir fái verkefni við hæfi.  Einnig er lögð mikil áhersla á að gera starfið skemmtilegt og áhugavert fyrir þátttakendur. Starfið verður svo brotið upp með því að fara í skemmtilega leiki og styttri gönguferðir. Kennarar í fimleikaskólanum eru fimleikaþjálfarar hjá fimleikadeild Fylkis.

Lögð er mikil áhersla á að þátttakendur beri virðingu fyrir eigum félagsins, kennurum og hvert öðru.  Öllum á að líða vel og tekið verður hart á öllum eineltismálum sem og því ef ekki er farið eftir því sem lagt er upp með.

Þátttakendur á námskeiðunum mæta með sitt eigið nesti í nestis- og matartímum. Brýnt er fyrir foreldrum að senda börnin með holt og gott nesti.

Skráning á námskeiðið  hefst 14. maí 2012 og eru veittir afslættir af þátttökugjaldi sé um systkini að ræða eða ef farið er á fleiri en eitt námskeið.

Parkour-námskeið verður haldið í sumar fyrir stráka fædda 2004 og 2005.  Nánari upplýsingar verða settar á heimasíðu félagsins þegar nær dregur.

Verð

Heilsdagsnámskeið kostar 10.000 krónur

Hálfsdagsnámskeið kostar 5.000 krónur

Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Afsláttur 10% ef keypt eru fleiri en eitt námskeið.

Skráning

Skráning hefst 14. maí á heimasíðu félagsins og í Fylkishöll 571-5601.

 

Hægt er að greiða með því að millifæra gjaldið á reikning 113-26-10817 Kt. 571083-0359.  Senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hafa nafn þátttakanda í skýringu.  einnig er hægt að greiða í afgreiðslu Fylkishallar og með því að hafa samband í síma 571-5601.

Námskeið 1 ( 11. júní – 15. Júní )

Námskeið 2 ( 18. Júní – 22. Júní )

Námskeið 3 ( 25. Júní – 29. Júní )

Námskeið 4 ( 2. Júlí – 6. Júlí )

Námskeið 5 ( 9. Júlí – 13. Júlí )

Námskeið 6 ( 7. Ágúst – 10. Ágúst )

Námskeið 7 ( 13. Ágúst – 17. Ágúst )

Hopp og skopp námskeið 16. - 20 .júlí kl. 9-12. Kennt verður á trampolín og loftdýnu

Parkour námskeið 16. - 20. júlí kl. 13-15

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 30. maí 2012 09:38 )