stuka

bordi

Sumarbordi

  • *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Á döfinni

Þú er hér: Heima Knattspyrnuskóli Fylkis 2012


Knattspyrnuskóli Fylkis 2012

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Knattspyrnuskóli Fylkis verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur og eru námskeiðin opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða vikunámskeið, virka daga frá kl. 9-12. Á námskeiðunum sjálfum verður iðkendum skipt upp eftir aldri, getu og kyni þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.

Námskeið 1 ( 6. júní – 8. Júní )

Námskeið 2 ( 11. Júní – 15. Júní )

Námskeið 3 ( 18. Júní – 22. Júní )

Námskeið 4 ( 25. júní – 29. júní)

Námskeið 5 ( 2. júlí – 6. júlí )

Námskeið 6 ( 7. Ágúst – 10. Ágúst )

Námskeið 7 ( 13. Ágúst – 17. Ágúst )

Fyrsta námskeið sumarsins er þriggja daga og námskeiði strax eftir verslunamannahelgina er  4 daga en önnur námskeið standa í fimm daga. Leikmenn meistarflokka félagsins munu koma í heimsókn og einnig aðrir góðir gestir. Umsjón með skólanum hafa íþróttafræðingarnir Kristján Gylfi Guðmundsson þjálfari 5. flokka drengja og Fannar Gunnólfsson þjálfari 2. flokks karla. Á öllum námskeiðunum verða hinar sívinsælu knattþrautir, fótboltagolf og ýmsar keppnir.

Allir iðkendur fá bol merktan knattspyrnuskóla Fylkis 2012 á sínu fyrsta námskeiði. Pylsupartý verður í lok hvers námskeiðs.

Við hvetjum pilta og stúlkur til þess að mæta á námskeið sumarsins enda alltaf gleði og gott veður á Fylkisvelli. Skráning hefst mánudaginn 14. maí í Fylkishöllinni.

Verð er  6.500 kr. á viku fyrir fimm daga námskeið en kr. 5.200 kr. á viku fyrir fjögra daga námskeið og 3.900 kr. fyrir þriggja daga námskeið. Ef iðkendur missa út dag eða daga á einhverju námskeiði vegna keppnisferða verður tekið tillit til þess við greiðslu námskeiðsgjalda.

Skráning og greiðsla

Skráning hefst 14. maí á heimasíðu félagsins og í Fylkishöll 571-5601.

Hægt er að greiða með því að millifæra gjaldið á reikning 535-26-80365 Kt. 571083-0199.  Senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hafa nafn þátttakanda í skýringu.  einnig er hægt að greiða í afgreiðslu Fylkishallar og með því að hafa samband í síma 571-5601.

Námskeið 1 ( 6. júní – 8. Júní )

Námskeið 2 ( 11. Júní – 15. Júní )

Námskeið 3 ( 18. Júní – 22. Júní )

Námskeið 4 ( 25. júní – 29. júní)

Námskeið 5 ( 2. júlí – 6. júlí )

Námskeið 6 ( 7. Ágúst – 10. Ágúst )

Námskeið 7 ( 13. Ágúst – 17. Ágúst )

Síðast uppfært ( Mánudagur, 14. maí 2012 11:24 )