Fylkir tapaði á móti Bresa í 2. deild kvenna í Blaki.
Leikurinn fór fram í Akranesi á sunnudaginn og endaði 3-2 en hörkubarátta var í öllum hrinunum og jafnt á milli liðanna. Fylkir vann fyrstu hrinuna 25-23 en tapaði svo þeirri næstu 23-25. Bresi tók líka þriðju hrinuna 25-21 en Fylkisstelpurnar jöfnuðu leikinn í þeirri fjórðu með því að sigra hrinuna 25-23 en misstu svo dampinn í oddahrinunni og töpuðu henni 8-15. Þær eiga svo leik aftur á þriðjudagskvöldið í Fylkishöllinni á móti Þrótti og gengur vonandi betur þá.
















