stuka

bordi

Sumarbordi

  • *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Á döfinni

Þú er hér: Heima Fimleikar Reglur fimleikadeildar Nemendareglur
left direction
n1
olgerdin2
islandsbanki
dg
eimskip
SAMSKIP
right direction


Nemendareglur fimleikadeildar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Keppnisreglur

  • Nemendur  mæti tímanlega á keppnisstað og fylgi fyrirmælum þjálfara síns í einu og öllu.
  • Nemendur skulu keppa í félagsbol og félagsgalla Fimleikadeildar Fylkis á öllum mótum Fimleikasambands Íslands nema stjórn ákveði annað.
  • Nemendur keppi með ólar og í stökkskóm í samráði við þjálfara sinn.
  • Nemendur mæti snyrtilega til fara, án skartgripa og þeir sem eru síðhærðir séu vel greiddir með teygju í hárinu.
  • Nemendum er stranglega bannað að vera með tyggigúmmí.
  • Keppnisrétt hafa þeir nemendur sem greitt hafa æfingagjöld eða gengið frá greiðsluáætlun vegna þeirra.
  • Keppnisrétt hafa þeir nemendur sem greitt hafa mótsgjöld.
  • Nemendur skulu vera félagi sínu og þjálfurum til sóma.

Æfingareglur

  • Nemendur mæti 10 mínútum áður en kennsla hefst (helst ekki fyrr) og bíði í búningsklefa þar til þjálfari sækir þá.
  • Nemendur mæti snyrtilega til fara, án skartgripa og þeir sem eru síðhærðir hafi teygju í hárinu.
  • Framhaldshópar skulu æfa í fimleikabol, frjálst er að vera í buxum við en þær verða að vera þröngar. Grunnhópar mega æfa í íþróttafatnaði en þó ekki í víðum fötum.
  • Nemendum er stranglega bannað að vera með tyggigúmmí.
  • Nemendum er aðeins heimilt að vera í salnum á æfingatíma og fari út úr salnum að lokinni æfingu í fylgd þjálfara.
  • Stranglega bannað að kroppa í eða henda svömpunum í gryfjunni.
    Það er með öllu óheimilt að vera á trampólíni eða í gryfju án þess að þjálfari sé viðstaddur.
  • Notkun GSM-síma er bönnuð í æfingasalnum. Vinsamlega hafið slökkt á þeim eða stillið þá á hljóðlaust ef þeir eru hafðir meðferðis. Vakin skal athygli á því að ekki er tekin ábyrgð á fjármunum eða fatnaði inn í búningsklefa. Verðmæti ætti að fá geymd í afgreiðslu.
  • Nemendur skulu boða forföll til þjálfara. Símanúmer þjálfara er að finna á vefsíðu deildarinnar. Ef nemandi ákveður að hætta eru foreldrar vinsamlega beðnir að tilkynna það til þjálfara.
                                                                                                                      
    Staðfest af stjórn fimleikadeildar Fylkis - janúar 2010
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 28. janúar 2010 22:52 )