Fylkir og FH áttust við í N1-deild kvenna í handknattleik í kvöld í Árbænum. Fylkir hafði betur 21:17 en staðan í hálfleik var 11:8 fyrir heimaliðið. Sunna María Einarsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Fylki.
Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 8, Sunna Jónsdóttir 6, Tinna Soffía Traustadóttir 2, Ela Kowal 2, Anna Sif Gunnarsdóttir 1, Sigríður Hauksdóttir 1, Nataly Valencia 1.













