Fylkir og Breiðablik mættust í kvöld í pepsi-deildinni á Fylkisvellinum. Gestirnir voru sterkari aðilinn í leiknum og unnu verðskuldaðan sigur 4-2.
Jafnræði var reyndar með liðunum til að byrja með og komst Fylkir yfir með marki frá Alberti Ingasyni. Breiðablik náði svo að jafna eftir um hálftíma leik og staðan í hálfleik 1-1. Það var svo í byrjun seinni hálleiks sem gestirnir gerðu út um leikinn og það er verðugt rannsóknarefni hvers vegna heimamenn mættu svona illa stemmdir til seinni hálfleiks. Þrjú mörk Breiðabliks á 15 mínútum drap leikinn og ekki bætti úr skák að Fylkir misnotaði svo vítaspyrnu. Það var svo undir lok leiksins sem Ingi náði að minnka muninn með góðu skoti. Lokatölur urðu því 4-2. Nú verða leikmenn og stuðningsmenn að þjappa sér saman og koma ferskir í næsta leik á móti Fram í bikarnum á fimmtudaginn. Áfram Fylkir !!


















