Á morgun, sunnudag, kemur topplið ÍBV í heimsókn og hefst leikurinn kl. 18. Þetta er enn einn hörkuleikurinn við lið í toppsætum Pepsi-deildarinnar og við hvetjum alla til að leggja sitt af mörkum, fjölmennum á völlinn og styðjum okkar menn í baráttunni. Upphitunarumfjöllun er væntanleg á Fylkismenn.is.
Club Orange verður með hamborgarapartý eins og á síðata leik þar sem hamborgarar og pepsi verða til sölu á góðu verði.
Strákarnir í 7. flokki og stelpurnar í 6. flokki verða heiðruð í leikhléi fyrir góða frammistöðu á mótum í sumar.
Gerum okkur glaðan dag á morgun og fjölmennum á völlinn - Áfram FYLKIR!

Leikmenn ganga inn á völlinn ásamt ungum iðkendum Fylkis. Mynd er fengin að láni á myndasíðu Einar Ásgeirsson.
















