stuka

bordi

Sumarbordi

  • *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Á döfinni

Þú er hér: Heima Handbolti Fylkir sigraði Gróttu nokkuð örugglega í N1-deildinni
bilaleiga akureyrar
distica
takk
tvg zimsen


Fylkir sigraði Gróttu nokkuð örugglega í N1-deildinni

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fylkir sigraði Gróttu nokkuð örugglega í Fylkishöllinni í dag. Lokatölur 32-23, staðan í hálfleik 19-12. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með, okkar stelpur heldur með frumkvæðið en tókst ekki að hrista baráttuglaðar Gróttustúlkur af sér. Upp úr miðjum hálfleiknum náði Fylkir að þétta vörnina og auka hraðann og náðu þar mað að auka muninn jafnt og þétt og leiddu í hálfleik með 19 mörkum gegn 12.

Fylkir byrjaði síðari hálfleikinn á að auka forystuna, en þá kom smá bakslag og Gróttustelpur náðu að minnka muninn niður í 5-6 mörk. Þá keyrðu okkar stúlkur aftur upp hraðann og juku forystuna í 10 mörk, 29-19 og hélst sá munur til leiksloka.

Sigga átti fínan leik og skoraði 8 mörk, flest úr hraðaupphlaupum eða hröðum sóknum. Sunna María fór fyrir liðinu af öryggi og skoraði 5 mörk, og Natalý sýndi oft snilldartakta og skoraði 4 mörk, líkt og Tinna sem var öflug á línunni. Kristrún Steinþórs lét vel til sín taka eftir að hún kom inná í síðari hálfleik og skoraði 3 mörk. Hornamennirnir Áslaug og Lilja skoruðu 2 mörk hvor og Jóhanna 1. Þá skoraði Gurrý 1 af línunni og Elín og Arna Valgerður hvor sitt markið.

Guðrún Ósk varði eins og berserkur, tók eina 27 bolta, enda vörnin oft öflug og urðu Gróttustelpur oft að taka erfið skot til að klára sóknirnar. Melkorka kom í markið í lokin, stóð sig vel og varði 2 skot.

Mörk Gróttu skoruðu þær Ásrún Lilja Birgisdóttir 7, Helga Ormsdóttir 6, Steinunn Kristín Jóhannsdóttir 3, Tinna Laxdal Gautadóttir 2, Sigrún Birna Arnardóttir 2, Ásgerður Dúa Jóhannsdóttir 2 og  Eva Björk Davíðsdóttir 1.  Hlíf Ágústa Reynisdóttir varði vel í markinu, tók alls 15 skot, og Hugrún Lena Hansdóttir varði 3.

Næsti leikur hjá stelpunum er á þriðjudaginn þegar þær fara í Kaplakrika þar sem þær spila við FH í 16 liða úrslitum Eimskips-bikarsins.

sigga
Sigga skoraði 8 mörk í leiknum, hér er hún komin í dauðafæri í leik við ÍR fyrr í vetur

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 07. nóvember 2010 22:34 )  

Fylkir-Vefbanner

Hafðu samband

Íþróttafélagið Fylkir

Sími: 571-5600
Fax: 567–6091

Netfang: fylkir@fylkir.com

Heimasíða: www.fylkir.com

Fylkishöll

Fylkisvegur 6
Reykjavík, 110
Ísland
571-5601
Fax: 567–6091

Fylkissel

Norðlingabraut 12
Reykjavík, 110
Ísland
571-5602
Fax: 567–6091

Styrktaraðilar handbolti

Árbæjarapótek
Your ad here

Skráning á póstlista

Skráðu þig á póstlista Fylkis. Við lofum að senda þér bara áhugaverðar tilkynningar.


Nafn:

Netfang:

Borði