Þar sem meistaraflokkur kvenna leikur við Val í undanúrslitum bikarsins á morgun var tilvalið að taka viðtal við Sunnu Maríu Einarsdóttur miðjumanninn geðþekka.
Nú er komið að því sem margir vilja meina stærsta leik tímabilsins af því sem komið er hvernig leggst hann í þig?
Hann leggst bara ótrúlega vel í mig. Alltaf gaman að spila svona stóra leiki, annars væri maður varla í þessu.
Eftir slæm úrslit úr síðasta leik liðanna á þá Fylkisliðið einhverja möguleika á morgun?
Bikarkeppnin er allt annað mót heldur en íslandsmótið. Ég lít svo á þetta að það skipti engu máli hvernig fyrri viðureignir hafa farið. Við erum taplausar í bikar og ætlum ekki að fara að breyta því á morgun.
Má búast við einhverju svipuðu og gerðist 2008 þegar Fylkissliðið fór í bikarúrslit og sló einmitt út Val í undanúrslitum?
Ef vel gengur og við náum að spila okkar leik þá má búast við því að sjá eitthvað svipað já.
Hvernig er staðan á mannskapnum, eru einhverjar meiddar eða allar klárar í þennan leik?
Við erum allar heilar í þennan leik, og ef það er eitthvað smáræði að þá bara þjappa menn sér saman fyrir svona viðureign. Ég get allavena lofað því að við munum stilla upp liði með 7 einstaklingum sem öllum hungrar mjög mikið í höllina.
Hvað telur þú að þurfi að ganga upp svo að Fylkir komist í Laugardalshöllina?
Við þurfum að ná að vera skynsamar í sóknarleiknum okkar og velja réttu færin því það skiptir okkur miklu máli að komast í vörnina því þar erum við illviðráðanlegar.
Eitthvað sem þú vilt koma til skila til yngri iðkenda og stuðningsmanna liðsins?
Allur stuðningur skiptir máli og þegar þið eruð komin í mín spor að fá þann heiður að spila þessa leiki þá verður það ykkar ósk að fá yngri krakkana á leikinn. Ég skora því á alla með appelsínugult eða hálf appelsínugult hjarta að koma og fá sér pulsu og kíkja á sætar stelpur spila handbolta ;).
Heimasíðan þakkar Sunnu Maríu kærlega fyrir spjallið.













