
Hildur Ólafsdóttir Íslandsmeistari í AT fimleikum á gólfi
Sunnudaginn 19. maí varð Hildur Ólafsdóttir Íslandsmeistari í AT fimleikum á gólfi og fylgdi þannig eftir Íslandsmeistaratitli í gólfæfingum í áhaldafimleikum kvenna. Þetta var í fyrsta skipti sem haldið er Íslandsmót í AT fimleikum sem er nýtt keppnisfyrirkomulag þar sem tveir keppendur eigast við á hverju áhaldi. Mótið var haldið í Versölum, húsnæði fimleikafélagsins Gerplu, og var liður í undirbúningi landsliða fyrir Smáþjóðaleikana í Luxemborg og Norðurlandamót unglinga í Noregi.
Mótið var sýnt í beinni útsendingu á RÚV en upptöku af því má nálgast á http://www.ruv.is/sarpurinn/fimleikaeinvigi/19052013-0.




Fimleikar










