Leikur , mót og æfingar í maí !
Æfingaleikur
Það verður æfingaleikur við KR á miðvikudaginn næsta 8. maí á Fylkisvelli ( úti ). Mæting er kl. 16:45 og verður spilað frá kl. 17:00-18:00. Allir sem eiga Fylkisbúning mæta í honum og þau sem hafa áhuga á að fjárfesta í einum slíkum geta gert það í búðinni BROS í Norðlingaholti. Mikilvægt að klæða krakkana miðað við veður.
Æfingar
Æfingar í maí verða á mánudögum kl. 17-18 á Fylkisvelli (úti) og á miðvikudögum kl. 17-18 í Fylkishöll (inni). Færum okkur svo út í byrjun júní. Það er engin æfing mánudaginn 20.maí (annar í hvítasunnu).
Vísmót Þróttar - Skráning til 15.maí
Við munum eins og undanfarin ár taka þátt í VÍS móti Þróttar og verður það mót laugardaginn 25.maí 2013 í Laugardalnum. Kostnaður við þátttöku í mótinu verður 2.700 kr á haus. Skráning fer þannig fram að borga þarf 2.700 kr inn á R. 535-05-401239 KT. 571083-0199 og setja nafn barns sem skýringu. Einnig þarf að senda póst á Hörð þjálfara þegar búið er að borga á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Þetta þarf að gerast fyrir 15.maí.
Æfingagjöld
Mikilvægt er að allir sem eru að æfa séu búnir að greiða æfingagjöldin. Það er reyndar í lagi að prófa í ca. 4 vikur í byrjun. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Fylkis, www.fylkir.com.
Samskipti foreldra og þjálfara
Við leggjum mikla áherslu á að samskipti foreldra og þjálfara séu góð. Samskiptin fara að miklu leyti fram í gegnum tölvupóst þannig að þau sem ekki hafa fengið frá okkur póst mega senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Einnig er flokkurinn með fréttasíðu á heimasíðu félagsins wwwfylkir.com undir fótbolti/yngri flokkar/8.flokkur.
Kv. þjálfarar og foreldraráð











