stuka

bordi

Sumarbordi

  • *
    *
    *
    *
    *
    Fields marked with an asterisk (*) are required.

Á döfinni

Þú er hér: Heima Fótbolti Yngri flokkar 5 flokkur kvenna
left direction
geinarsson
...
takk
...
bonus
islandsbanki
hummel
...
bros
right direction


5. flokkur kvenna

Jólabíó Fylkis

 

Desember

Mánudagurinn 17.des                  Furðufataæfing                   Egilshöll                                        16:00-17:30
Miðvikudagurinn 19.des              Æfing                                  Fylkisvöllur                                     15:30-16:40 (síðasta æfingin fyrir jól)
 

Jólafrí

 

26.nóv - 30.nóv

 

Sæl öll, hér kemur dagskrá vikunnar 26. nóv -30.nóv

Mánudagur        Fylkisvöllur         15:30-16:40        Æfing allar

Þriðjudagur        Norðlingaskóli   19:00-20:00        Tækninámskeið, fyrir þær sem eru skráðar

Miðvikudagur   Fylkisvöllur         15:30-16:40        Æfing allar

Fimmtudagur    Fylkisvöllur         16:00-17:10        Æfing allar

Fimmtudagur    Norðlingaskóli   19:00-20:00        Markmannsæfing, fyrir markmenn flokksins

 

Hættir frístundavagninn um áramótin ?

 

Tilkynning til foreldra frá Fylki

Stjórn Íþróttafélagsins Fylkis samþykkti í byrjun september að auka verulega þjónustu félagsins við iðkendur og foreldra hvað varðar frístundastrætó Fylkis.  Þessi ákvörðun var tekin á þeim forsendum að þörfin væri mikil og að þetta væri í raun nauðsynlegur hluti af starfsemi félagsins.

Strætóinn hefur gengið  alla virka daga milli kl. 14:00 og 17:00 og geta  allir iðkendur Fylkis  nýtt sér vagninn til og frá æfingum samkvæmt útgefinni dagskrá.   Þeir sem nota vagninn hafa ekki þurft að greiða sérstaklega fyrir þá notkun.

Nú er haustönnin rúmlega hálfnuð og hefur þátttakan verið langt undir væntingum.  Félagið er að borga háar fjárhæðir með rekstrinum og því ekki forsvaranlegt að halda núverandi fyrirkomulagi  áfram eftir áramót miðað við óbreytt ástand.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvers vegna foreldrar hafi ekki nýtt sé þetta úrræði betur þar sem þetta sparar þeim mikinn tíma og pening.  Með þessu bréfi viljum við hvetja foreldra til að kynna sér þessa þjónustu og athuga vel hvort þau geti ekki nýtt sé hana.

Frístundavagninn mun keyra samkvæmt núverandi áætlun fram að jólum en á eins og staðan er núna er óljóst hvernig fyrirkomulagið verður eftir áramót.  Fjölgi þeim börnum sem nýta sér vagninn fram að áramótum eru meiri líkur á því að núverandi fyrirkomulag haldist áfram eftir áramót.

Að lokum skal benda á að skráning í vagninn  fer fram á heimasíðu félagsins en allir sem nýta sér þessa þjónustu verða að vera skráðir.